Mun Nigel Farage snúa aftur?

56585f95c46188bf318b456d

Nigel Farage, fyrrverandi formaður Breska Sjálfstæðisflokksins (UKIP) gaf það í skyn í viðtali við bresku sjónvarpsstöðina Sky News að hann myndi mögulega snúa aftur sem formaður flokksins. Sagði hann að hann myndi koma aftur inn í bresk stjórnmál ef það myndi hægja á útgönguferli Bretlands úr Evrópusambandinu.

“Hvort ég muni koma til baka á víglínurnar veltur á því hvort að forsætisráðherran standi við orð sín” sagði Farage, og átti hann þar við Theresu May, forsætisráðherra Bretlands og loforð hennar um farsæla útgöngu úr Evrópusambandinu.

Kosið verður á Bretlandi fimmtudaginn 7. júní.

Leave a comment